Ohh... . EyVVVVii klukkaði mig, ætli ég verði ekki að taka þessari
áskorun..læt ekki svona slá mig útaf laginu!
núverandi tími: 21:19
núverandi föt: jeans,
bolur, peysa, nærur og brjóstari!
núverandi hár: rót frá
helvíti niðrá eyru, en annars sjúskað í tagli. Hvar er Káta
krullan??
núverandi pirringur: Verð
aldrei pirruð
núverandi lykt: Love spell
núverandi hlutur sem þú ættir að
vera að gera: Prjóna vettlingana fyrir Balla bró sem ég
byrjaði á að prjóna áðan.
núverandi skartgripir:
Hringur sem ég fékk í fermingargjöf, hálsmen frá ömmu Boggu og
forláta eyrnalokkar.
núverandi áhyggja: Tekst
mér að klára vettlingana??
núverandi löngun: Væri til
í ís með heitri karamellusósu...
núverandi ósk: Að
peningatréð í garðinum myndi líka blómstra á veturnar.
núverandi farði: Maskari
núverandi eftirsjá: Til
hvers að sjá eftir einhverju.. því verður ekki breytt úr þessu. Það
er nú einu sinni þannig að það er ekki um rassinn gripið þegar búið
er að skíta í buxurnar.
núverandi vonbrigði: Ég get
ekki hætt að naga neglurnar
núverandi skemmtun: Mér er
ekki skemmt núna.
núverandi ást: Mínir
elskulega fjölskylda og vinir... og matarást, já og auðvitað
Snótin.
núverandi staður:
Tölvuherbergi, Góuholt 5, Paradís. (Ísó selvfölgelig)
núverandi bók: Engin bók...
en ég fletti DV áðan.. telst það með?
núverandi bíómynd: horfði á
Coach Carter í fyrradag.
núverandi íþrótt: Pikk á
lyklaborðið með réttri fingrasetningu.. tekur lúmskt á, blak, og
svo er planið að kaupa kort í ræktina...
núverandi tónlist: Engin
tónlist, bara lætin í bróðir mínum sem er í einhverjum tölvuleik:
Hljómar svona: Af hverju drapstu hann ekki?, nei farðu vinstra
megin, fokk, ertu að grínast?, Oj, go short short, nei long...
o.s.frv.
núverandi lag á heilanum:
Ekki neitt held ég bara.
núverandi blótsyrði: Fy
faen, pokker, dauðadjöfull. Mamma dýrkar þegar ég segi það
síðastnefnda.
núverandi msn manneskjur:
Balli... sem er í næsta herbergi. Sorglegt?
núverandi desktop mynd:
Bara blár skjár sem stendur Medion á.
núverandi áætlanir fyrir
kvöldið: Prjóna, gera bréf til að senda í bankann í Oslo og
eitthvað eitt annað sem ég man ekki hvað var.
núverandi manneskja sem ég er að
forðast: hmmm....
núverandi dót á veggnum:
Teiknuð mynd af Balla bró, dagatal, og eitthvað ofið (sögnin að
vefa) skraut með æðarkolluhreiðri á.
Jæja þá er það komið... Ætla ekki að klukka neinn nema Sellu því
hún var svo grobbin um daginn því það væri ekki hægt að klukka hana
því hún var ekki með síðu. En núna er hún komin með slíka svo...
KLUKK Sella gella!!
Annars ekki neitt að frétta, nema auðvitað að ég er komin heim.
Skildi Óla drjóla einan eftir í Osló með brjálaða nágrannann. Er að
vinna á hótelinu við að þjóna. Er viðbjóðslega klaufsk, en ekki
ennþá búin að hella niður á neinn en ég bíð eftir að það gerist.
Til hamingju með daginn Skratlalingur!
Later!